Eitt kvöld í vetur þegar ég var ein heima þá sótti ég 3 boli ofan í skúffu, boli sem ég nota aldrei því a.) mér fannst þeir ekki flottir eða b.) var ekki að fýla þá. Fyrsti bolurinn eyðilagðist, já, fyrsta tilraun heppnaðist semsagt mjög illa þar sem ég klippti hann á endanum í einhverjar ræmur, jæja áfram hélt ég - óð með skærin.
Næsti bolur sem fékk að finna fyrir því var þessi hér. Ég ákvað að hafa framhliðiná á "nýja" bolnum hvíta og nota bláa munstrið í bakhliðina.
Þegar bolurinn var klipptur og bundin saman í endann þá datt mér í hug að prufa að stennsla á hann í vinnunni minni. Ég hafði aldrei stennslað áður og því var myndin of neðarlega, hefði vilja hafa hana örlítið ofar. En eins og mamma mín segir alltaf ,,þá er það bara betra"!
Næst var það DEAD-bolur, en mér fannst sniðið á honum vera óþægilegt. Finnst persónulega langþægilegast að vera í hlýrabolum, loveitloveit.
Útkoman:
Ég náði ekki að taka mynd af bakinu á þessum bol, en ég klippti það eiginlega í sundur þannig það er allt í svona opnum röndum á bakinu. Er bara nokkuð sátt með útkomuna! Það kom mér skemmtilega á óvart hvað þetta væri ekkert mál (fyrir utan fyrsta bolinn;) !)
Gott að eiga þessa þegar maður gerir æfingar í stofunni, en það er jú ein uppáhalds ræktarstöðin mín:)